15 apr. 2013Stjörnustrákarnir í minniboltanum urðu um helgina íslandsmeistarar 2013 eftir sigur á lokamótinu í ár. Eftir jafna keppni höfðu þeir unnið alla sína leiki og stóðu uppi sem sigurvegarar. Keflavík hafnaði í öðru sæti og hlaut silfur fyrir og Þór Akureyri varð í þriðja sæti. Haukar og Njarðvík léku einnig í A-riðli. Til hamingju Stjarnan.