11 apr. 2013Keflavík eignaðist á dögunum íslandsmeistara í 7. flokki drengja þegar liðið sigraði lokamótið í ár. Keflavík og KR voru taplaus fyrir lokaleikinn og þar sigruðu keflavíkurstrákarnir 49:47 og urðu þar með íslandsmeistarar. KKÍ óskar Keflavík til hamingju með titilinn.