11 apr. 2013
KR tekur á móti Grindavík í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Domino's deildarinnar fimmtudaginn 11. apríl. Staðan er 2-1 fyrir Grindavík en þrjá sigurleiki þarf til að fara áfram í úrslitin. Leikurinn verður í beinni útsendingur á Stöð 2 Sport frá kl. 19.00.