10 apr. 2013Í kvöld fer fram úrslitaleikur 1. deildar kvenna í Hveragerði þar sem Hamar og Stjarnan munu leika hreinan oddaleik um það hvort liðið fer upp um deild og leikur í Domino's deild kvenna á næsta tímabili. Liðin hafa unnið sitthvorn heimaleikinn. Hamar vann 75:60 í fyrsta leiknum og Stjarnan vann 61:45 í leik tvö. Arionbanki ætlar að bjóða öllum frítt á leikinn þannig að það má búast við fjölmenni og góðri stemmningu á áhorfendabekkjunum. Leikurinn hefst kl. 19.15 og verður í beinni tölfræðilýsingu á KKI.is