8 apr. 2013Þór Akureyri og Kjarnafæði efna til körfuboltamóts fyrir drengi og stúlkur 12 ára og yngri þann 27. apríl næstkomandi á Akureyri. Leikið verður í tveimur riðlum og fær hvert lið fjóra leiki sem eru 2x12 mínútur. Í mótslok fá allir verðlaunapening og á verðlaunaafhendingu verður grillveisla. Nánari upplýsingar og skráning: Bjarka Oddsyni á netfanginu [p+]lubjark@gmail.com[p-]lubjark@gmail.com[slod-].