6 apr. 2013Ákveðið hefur verið að hið árlega vormót Molduxa fyrir 40 ára og eldri verði haldið laugardaginn 20 apríl n.k. í íþróttahúsinu á Sauðárkróki (Síkinu). Takið þessa helgi frá og mætum með góða skapið og keppnisandann í lagi. Allar upplýsingar og skráningar eru hjá Alla Munda í síma 453 6687 / 865 0819 og allimunda@internet.is Á heimasíðu ungmennafélagsins er hægt að fá upplýsingar um gistimöguleika ofl. í Skagafirði fyrir þá sem það vilja. Sjá nánar á [v+]http://www.molduxar.is [v-]www.molduxar.is[slod-].