24 mar. 2013Helena Sverrisdóttir skoraði 2 stig á 13 mínútum í leiknum um bronsið í EuroLeague fyrr í dag þar sem hún og liðsfélagar hennar í Good Angels Kosice töpuðu fyrir Bourges Basket 65:57. Helena og félagar voru yfir einu stigi í hálfleik og tveimur stigum undir fyrir loka leikhlutann. Þar kom slæmur sjö mínútna kafli þar sem þær skoruðu aðeins eitt stig og leiklhlutinn fór 23-17. Besti leikmaður Evrópu 2013, Celine Dumerc, var stigahæst í leiknum með 24 stig og leiddi lið sitt til sigurs. Alexandria Quigley var stigahæst hjá Kosice með 18 stig og átt fráköst. Helena skrifaði sig á spjöld íslenskrar körfuboltasögu um helgina með því að vera fyrsti leikmaðurinn til að leika í úrslitum EuroLeague kvenna og stóð hún sig með prýði.