22 mar. 2013
Í kvöld fer fram lokaumferð 1. deildar karla á þessu tímabili og mun það ráðast í kvöld hvaða lið verður deildarmeistari og hlýtur sæti í Domino's deildinni að ári og hvaða lið falla um deild. Á sama tíma ræðst hver verður endanleg röð næstu fjögurra liða sem fara í úrslitakeppni um hitt lausa sætið í Domino's deildinni. Þrjú lið eiga möguleika á að ná fyrsta sætinu, Haukar, Valur og Hamar, og fara beint upp um deild. Höttur og Haukar mætast kl. 18.30 á Egilsstöðum. Með sigri verða Haukar deildarmeistarar óháð úrslitum í öðrum leikjum. Hamar mætir FSu í Hveragerði kl. 19.15 og þarf Hamar sigur og treysta á að Valur og Hamar tapi á sama tíma til að verða í fyrsta sæti. Valur og Augnablik mætast kl. 20.30 og Valur þarf sigur og treysta á að Haukar tapi fyrir Hetti til að verða deildarmeistarar. Á sama tíma þarf Augnablik sigur til að tryggja sæti sitt í deildinni. Reynir Sandgerði og ÍA mætast kl. 19.15 en liðin tvö eru á botni deildarinnar. Reynir S. er fallið í 2. deild en ÍA þarf sigur og treysta á að Augnablik tapi til að hafa sætaskipti við Augnablik. Breiðablik og Þór Akureyri mætast kl. 20.00. Þór Akureyri hefur tryggt sér 5. sætið og öruggt 4. sæti í úrslitakeppninni. Breiðablik getur ekki náð þeim að stigum og verða í 6. sæti deildarinnar þó svo að FSu jafni þá að stigum sem eru í 7. sæti. Leikirnir verða allir í beinni tölfræðilýsingu hér á KKÍ.is.