20 mar. 2013Helena Sverrisdóttir og Good Angels Kosice eru komnar í undanúrslit EuroLeague eftir góðan sigur á pólska liðinu CCC Polkowice 66:54. Liðið mun leika til undanúrslita á föstudaginn kemur gegn Fenerbache frá Tyrklandi og á sunnudaginn er leikið um 3. sæti og til úrslita. Í hinn viðureigninni eigast við UMMC Ekaterinburg (Rússland) og Bourges Basket (Frakkland). Helena er fyrsti íslendingurinn til að leika í EuroLeague kvenna en Good Angels Kosice er einnig í fyrsta sinn í sögu félagsins í lokakeppni mótsins og verður fróðlegt að sjá hvort Helena og liðsfélagar tryggi sér sæti í úrslitaleiknum á sunnudaginn kemur.