18 mar. 2013Helena Sverrisdóttir og liðsfélagar í Good Angles Kosice unnu sinn fyrsta leik í átta liða úrslitum EuroLeague sem fram fer í Rússlandi í kvöld þegar þær lögðu Galatasary 65:71. Þetta var fyrsti sigur Englanna í sögu félagasins í átta liða úrslitum keppninnar og þetta var jafnframt níundi siguri liðsins í síðustu 10 leikjum keppninnar. Frábær byrjun liðsins lagði grunninn að sigrinum en þær komust í 24-10 í fyrsta leikhluta og svo í 39-12 í öðrum leikhluta. Helena lék í 12 mínútur og skoraði 2 stig. Næsti leikur liðsins verður erfiður en þá mæta þær líklega besta kvenna félagasliði heims, UMMC Ekaterinburg, en leikið er á heimavelli þeirra í keppninni. Um er að ræða riðlakeppni og fara efstu tvö liðin (af fjórum) áfram í undanúrslitin. Þriðji mótherji Helenu og félaga er pólska liðið CCC Polkowice sem þær leika gegn á miðvikudaginn. Úrslitin fara svo fram um helgina þannig að með áframhaldandi góðu gengi er allt mögulegt hjá Helenu og Good Angels Kosice. Nánar er hægt að lesa um dagskránna og keppnina á vef [v+]http://www.fibaeurope.com/euroleaguewomen/cid_-tmRPCfrIrYRSO2M5V49E1.pageID_kOmJ-BBrImsWzZElQnx7p2.compID_jr6ZiXqeGhMBtfq1yxqV83.season_2013.roundID_9162.html [v-]FibaEurope.com[slod-].