8 mar. 2013Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í vikunni. Agaúrskurður nr. 27/2012-2013 Með vísan til ákvæðis c. liðar 13. gr. reglugerðar um aga – og úrskurðarmál skal hin kærða, Linda Hlín, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnis b og Þórs Akureyri, á Íslandsmóti meistarflokks kvenna 1. deild, sem fram fór þann 24. febrúar sl. Agaúrskurður nr. 28/2012-2013 Með vísan til ákvæðis b. liðar 13. gr. reglugerðar um aga – og úrskurðarmál skal hinn kærði, Mark Jones, þjálfari Þórs Akureyri, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnis b og Þórs Akureyri, á Íslandsmóti meistar¬flokks kvenna 1. deild, sem fram fór þann 24. febrúar sl. Úrskurðirnir taka gildi á hádegi fimmtudaginn 7. mars.