8 mar. 2013
Um helgina er komið að bikarúrslitum yngri flokka 2013 þar sem 18 lið keppa í níu flokkum til sigurs. Leikið verður í Ásgarði í umsjón Stjörnunnar og hvetjum við alla áhugamenn um körfubolta að mæta og sjá marga af efnilegustu leikmönnum landsins etja kappi. Undanfarin ár hefur verið mikið fjör í úrslitaleikjunum og oft mikil dramatík. Beint á netinu um helgina: Sport-TV mun sýna beint frá öllum leikjum helgarinnar, bæði laugardag og sunnudag [v+]http://www.sporttv.is/Ibeinni/KKIbikarinn/ [v-]BEINT FRÁ ÁSGARÐI HÉRNA[slod-] KKÍ óskar bikarmeisturum laugardagsins til hamingju með titilinn. Sunnudaginn 10. mars eru fjórir leikir á dagskránni og hvetjur KKÍ alla til að mæta og sjá frábæra leiki í Ásgarði.