6 mar. 2013Körfuknattleikssamband Íslands auglýsir eftir umsóknum á FIBA Europe Coaching Certificate. Um er að ræða evrópskt þjálfaranám sem spannar 3 sumur, 2013, 2014 og 2015. Umsækjandi þarf að skuldbinda sig í þrjú ár sem þátttakandi í þessu námi. KKÍ á eitt öruggt pláss á námskeiðinu en möguleiki á öðru er fyrir hendi en það kemur í ljós þegar allar þjóðir hafa sent umsóknir sínar inn. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Friðriki Inga Rúnarssyni, framkvæmdarstjóra KKÍ með því að senda honum tölvupóst á fridrik.runarsson@kki.is. Umsóknum skal skilað til skrifstofu KKÍ eða á netfangið kki@kki.is fyrir 15. mars næstkomandi. Umsækjendur þurfa að taka fram þjálfaramenntun, þjálfarareynslu og aðra menntun sem gæti nýst umsækjanda. Upplýsingar um námskeiðið má finna hér að neðan: [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_cX2g4KInJe2MEsKv0ErKz1.html[v-]Almennar upplýsingar[slod-] [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_b04tD02nJDgrSMRmATIi61.html[v-]Hvað er farið í á hverju stigi[slod-] [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_VCikhxI7HhkrwZCguBKT33.html[v-]Kennarar á námskeiðunum[slod-]