4 mar. 2013Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands hefur boðað til þings sambandsins 15. og 16. mars. Þeir aðilar sem ætla að bjóða sig fram til stjórnar og eða varastjórnar þurfa að tilkynna um framboð með minnst 10 daga fyrirvara. Í dag er því síðasti dagur til að senda inn tilkynningu um framboð til stjórnar, mánudaginn 4. mars. Lög KKÍ og allar reglugerðir sambandsins má nálgast hér á heimasíðu KKÍ undir „Reglugerðir“.