28 feb. 2013Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í eftirfarandi máli nr. 3/2012-2013. Með vísan til þess að beiðni um leikmannaskipti í máli þessu voru afhent skrifstofu KKÍ innan heimilaðs félagaskiptatímabils og að aðrar form- og hlutgengisreglur voru uppfylltar síðar en þó fyrir umdeildan leik, voru umræddir leikmenn löglegir í leik Sindra og Ármanns sem fram fór laugardaginn 2. febrúar 2013 í 2. deild karla. Kröfu Sindra um að félaginu verði dæmdur 20-0 sigur í leik félagsins við Ármann, sem fram fór laugardaginn 2. febrúar 2013 í 2. deild karla, er hafnað. Hægt er að lesa dóminn [v+]http://www.kkdi/skjol/3_2012_2013.pdf [v-]hérna[slod-].