26 feb. 2013Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í dag og úrskurðaði eftirfarandi. Agaúrskurður nr. 25/2012-2013 Með vísan til ákvæðis b. liðar 13. gr. reglugerðar um aga – og úrskurðarmál skal hinn kærði, Hallgrímur Brynjólfsson, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Breiðabliks og Hamars, Íslandsmóti meistarflokkur kvenna, sem fram fór þann 24. febrúar sl. Agaúrskurður nr. 26/2012-2013 Með vísan til ákvæðis c. liðar 13. gr. reglugerðar um aga – og úrskurðarmál skal hinn kærði, Jóhann Árni Ólafsson, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar og Grindavíkur, Dominos deild karla meistaraflokki, sem fram fór þann 24. febrúar sl.