13 feb. 2013Leikmaður ársins · karlar Hinn rússneski Andrei Kirilenko hefur verið valinn besti leikmaður ársins hjá FIBA Europe. Andrei hefur áður hlotið þennan titil en það var árið 2007. Andrei lék með CSKA Moskvu á síðasta tímabili eftir að hafa leikið í 10 ár með Utha Jazz í NBA-deildinni. Í upphafi þessa tímabils snéri hann til baka og leikur með Minnesota Timberwolves. Með CSKA fór hann alla leið í úrslitaleikinn í EuroLeague og var valinn leikmaður ársins í þeirri deild. Með rússneska landsliðinu vann hann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í London en það voru fystu verðlaun Rússlands í körfubolta frá lokum Sovétríkjanna á Ólympíuleikum. Pau Gasol, LA Lakers og spænska landsliðinu, hafnaði í 2. sæti í kjörinu og Grikkinn Vassilis Spanoulis, Olympiacos, varð þriðji í ár. Í kjöri besti ungi leikmaður ársins var það Litháinn stæðilegi Jonas Valanciunas sem var valinn bestur annað árið í röð. Leikmaður ársins · konur Celine Dumerc frá Frakklandi valinn best í ár. Franska landsliðið vann gull á Ólympíuleikunum í London þar sem hún var stigahæst í sínu liði og franska liðið til alls líklegt á Evrópumótinu í sumar þegar það fer fram á hennar heimavelli. Í öðru sæti var Eva Vitecková frá Tékklandi og Becky Hammon frá Rússlandi. Besti ungi leikmaður kvenna var valin hin úkraínska Alina Iagupova.