7 feb. 2013Jón Arnór Stefánsson og liðsfélagar hans í CAI Zaragoza leika í kvöld sinn fyrsta leik í „Copa del Rey“ en það er bikarkeppni þeirra Spánverja í körfunni og verður Jón Arnór þar með fyrsti íslendingurinn til að taka þátt í Konungsbikarnum. Staða liða um áramótin ákvarðar hvaða átta lið leika í keppninni sem byrjar í kvöld og klárast á sunnudaginn. CAI Zaragoza leikur gegn Caja Laboral í fyrstu umferð í kvöld og mun sigurvegari leiksins mæta sigurvegaranum úr hinum leik kvöldsins, leik Real Madrid og Barcelona. Undanúrslitin fara fram á laugardaginn og úrslitaleikurinn fer svo fram á sunnudaginn. Leikurinn hefst kl. 20.30 að íslenskum tíma í kvöld.