31 jan. 2013
Ásta Rún og Gígja voru alsælar, þær tryggðu sér Helenu Sverrisdóttur-treyjur með því að setja niður vítaskot Stjörnuleikur kvenna fór fram í gær og tókst vel, vel var mætt í Toyota höllina og skemmtu leikmenn og gestir sér vel.
Crystal Smith sigrað í Þriggja-stiga keppninni en eftir undankeppnina fóru 5 í úrslit þar sem Crystal sigraði að lokum og var krýnd þriggja-stiga drottning.
Leikur höfuðborgarsvæðisins gegn landsbyggðinni endaði í framlengingu eftir að landið hafði leitt leikinn lengst framan af. Leikmenn landsbyggðarinnar höfðu svo sigur 109-106 eftir að lokaskot höfuðborgarsvæðisins skoppaði af hringnum. Lele Hardy var valin maður leiksins en hún var með fallega þrennu, 20 stig, 18 fráköst og 10 stoðsendingar.