22 jan. 2013
Þá er kosningunni lokið í Stjörnuleik kvenna í ár en aðdáendur gátu kosið á KKI.is líkt og undanfarin ár. Leikurinn fer fram í Toyotahöllinni í Keflavík, miðvikudaginn 30. janúar. Það var Sara Rún Hinriksdóttir, Keflavík, sem hlut flest atkvæði í ár eða 243 en hún mun leika í liði „Landsbyggðarinnar“. Britney Jones, Fjölni, var svo með flest atkvæði í liði „Höfuðborgarsvæðisins“. Sigurður Ingimundarsson mun þjálfa lið Landsbyggðarinnar þar sem Keflavík var á toppnum um áramótin og Finnur Stefánsson, KR, var efsti þjálfari höfuðborgarsvæðiðsins. Þeir félagar munu svo velja sjö leikmenn til viðbótar þeim fimm sem byrja leikinn. Eftirfarandi leikmenn hlutu flest atkvæði: Lið höfuðborgarsvæðisins: (fjöldi atkvæða fyrir framan) 207 · Britney Jones · Fjölnir 151 · Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · KR 149 · Siarre Evans · Haukar 141 · Jaleesa Butler · Valur 131 · Margrét Rósa Hálfdanardóttir · Haukar Lið landsbyggðarinnar: 243 · Sara Rún Hinriksdóttir · Keflavík 238 · Lele Hardy · Njarðvík 202 · Pálína Gunnlaugsdóttir · Keflavík 171 · Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell 166 · Hildur Sigurðardóttir · Snæfell