19 jan. 2013Stjörnuleik KKÍ er lokið þar sem Domino´s liðið vann Icelandair liðið 122-148. Það var mikið troðslur og þriggja-stiga skot í þessum skemmtilega leik í Ásgarði. Leikmenn beggja liða settu tóninn strax í upphafi en sóknin var í fararbroddi á meðan varnarleikurinn var svona aðeins til hliðar.
Jay Threatt var valinn besti maður leiksins en hann var með fallega þrennu eða 21 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar.
Í þriggja-stiga keppninni vann Magnús Þór Gunnarsson en það þurfti að knýja fram úrslit með framlengingu í úrslitunum en hann og Eric James Palm voru jafnir.
Í troðslukeppninni vann Billy Baptist en hann var með glæsileg tilþrif og fékk nánast alltaf fullt hús stiga hjá dómurunum. [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=10533&season_id=63333&game_id=2428755 [v-]Tölfræði leiksins[slod-]. Helstu tilþrif í samantekt frá [v+]http://www.sporttv.is/Alltefnid/Efni/742 [v-]SportTV.is[slod-].