18 jan. 2013Eins og alltaf þegar um Stjörnuleiki er að ræða þá er 3-stiga keppnin á sínum stað. Undankeppnin hefst klukkan 14:00 í Ásgarði í Garðabæ. Jón Ólafur Jónsson bar sigur úr býtum í keppninni á síðasta ári en á meðal keppenda í ár eru nokkrir sem hafa látið mikið að sér kveða og m.a. unnið á síðustu árum eins og Magnús Þór Gunnarsson. Eftirtaldir leikmenn munur berjast um titilinn í ár: 1. Samuel Zeglinski · Grindavík 2. Eric James Palm · ÍR 3. Benjamin Curtis Smith · Þór Þ. 4. Kristján Pétur Andrésson · KFÍ 5. Jón Ólafur Jónsson · Snæfell 6. Carlos Medlock · Skallagrímur 7. Magnús Þór Gunnarsson · Keflavík 8. Justin Shouse · Stjarnan 9. Brynjar Þór Björnsson · KR 10. Jovan Zdravevski · Stjarnan