18 jan. 2013Laugardaginn 19. janúar fer Stjörnuleikur karla fram í Ásgarði. Leikurinn verður sýndur í beinni á [v+]http://www.sporttv.is/Ibeinni/Dominosdeildin/ [v-]Sport-TV[slod-]. Fjórir leikmenn hafa skráð sig í Troðslukeppnina og 10 efstu menn á tölfræðilistum yfir þriggjastiga skot keppa um titilinn Þriggjastigameistari KKÍ 2013. Í hálfleik og milli leikhluta verða heppnum aðilum leyft að spreyta sig á miðjuskotum þar sem glæsilegir vinningar eru í boði frá Icelandair og Domino's. Dagskrá (áætlun) Kl. 14.00 3-stigakeppni - Undankeppni Fimm staðir, þrír boltar á hverjum stað, hver bolti gefur eitt stig, síðasti tvöfalt Kl. 14.30 Troðslukeppnin - Undankeppni Kl. 15.00 Stjörnuleikurinn · Fyrri hálfleikur Lið Icelandair (íslenskir leikmenn) gegn liði Domino’s (erlendir leikmenn) Kl. 15.30 Hálfleikur · Úrslit í 3-stiga keppni Efstu menn keppa til úrslita Kl. 15.50 Stjörnuleikur · Seinni hálfleikur Kl. 16.30 Áætluð dagskrárlok