16 jan. 2013Öldungamót Þórs verður haldið í íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 23. febrúar 2013. Spilað verður í tveimur aldurshópum karla, 30+ og 40+. Möguleiki á keppni hjá konum ef næg þátttaka er fyrir hendi, aldurstakmark þar 28+ Leiktími 2x12 eða 2x14 mín. Hvert lið fær að minnsta kosti þrjá leiki. Eftir mót verður haldin Vítakeppni auk verðlaunaafhendingar og veitinga. Hefðbundinn vísindaleiðangur á Víking-slóðir. Skráningargjald 3.000 krónur á mann og 500 krónur fyrir þá sem taka þátt í vítakeppni. Skráning og frekari upplýsingar gefur Eiríkur Sigurðsson í s: 892-3166 og á netfanginu [p+]eiisig@internet.is[p-] eiisig@internet.is[slod-]. Nánar á [v+]http://www.thorsport.is[v-]www.thorsport.is[slod-].