15 jan. 2013
Búið er að draga í Poweradebikarnum í síðasta sinn í ár og drógust eftirfarandi viðureignir saman: Konur: Hamar · Valur Snæfell · Keflavík Karlar: Keflavík · Grindavík Snæfell · Stjarnan Punktar: · Öll karlaliðin í undanúrslitunum hafa orðið bikarmeistari áður, en Keflavík hafa titil að verja. · Hamar og Valur hafa hvorugt farið í úrslitaleik bikars áður en ljóst er að annað þeirra fer í úrslit í ár. Keflavík og Snæfell hafa bæði farið í úrslit, Keflavík hefur sigrað keppnina en Snæfell fór í úrslit í fyrsta sinn í fyrra en þá hafði Njarðvík betur.