28 des. 2012Kosning leikmanna í Stjörnuleik karla stendur nú yfir hér á KKI.is fyrir fyrir leikinn þann 19. janúar í Ásgarði. Rífandi þátttaka er að venju og er ansi jöfn kosning meðal efstu manna. Eins og staðan er núna eru þetta byrjunarliðin tvö í Stjörnuleiknum en leikmönnum er raðað eftir atkvæðafjölda: Dominos-liðið: 1. Aaron Broussard - Grindavík 2. Eric Palm - ÍR 3. Jay Threatt - Snæfell 4. Benjamin Curtis - Þór Þ. 5. Marcus Van - Njarðvík Icelandair-liðið: 1. Jón Ólafur Jónsson - Snæfell 2. Kristófer Acox - KR 3. Justin Shouse - Stjarnan 4. Elvar Már Friðriksson - Njarðvík 5. Martin Hermannsson - KR Hægt er að kjósa [v+]http://kosningkki.einfalt.is/skraning/ [v-]hérna[slod-] fyrir þá sem eiga eftir að velja sín byrjunarlið.