21 des. 2012Í kvöld föstudagskvöldið 21. des. munu leiða saman hesta sína lið UMFN og úrvalsliðs Njarðvíkinga. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og mun allur ágóði af leiknum renna til Líknarsjóðs Njarðvíkurkirkna. Aðgangseyrir á leikinn er 1.000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn auk þess sem fólk getur styrkt gott málefni með frjálsum framlögum. Það vantar ekki bomburnar í þetta verkefni en úrvalsliðið er þannig skipað: Þjálfararnir: Friðrik Ingi Rúnarsson – Íslandsmeistari 1985, 1986, 1987 (sem leikmaður), 1991, 1998 (sem þjálfari) Gunnar Þorvarðarson: Íslandsmeistari 1981, 1982 (sem leikmaður), 1984, 1985 (sem spilandi þjálfari), 1986 (sem þjálfari), 2006 (sem aðstoðarþjálfari) Leikmannahópurinn: Ísak Tómasson - Íslandsmeistari 1981, 1982, 1984, 1985, 1986, 1987, 1991, 1994, 1995 Teitur Örlygsson – Íslandsmeistari 1984, 1985, 1986, 1987, 1991, 1994, 1995, 1998, 2001, 2002 Friðrik Ragnarsson – Íslandsmeistari 1987, 1991, 1994, 1995, 1998 (sem leikmaður), 2001 (sem spilandi þjálfari), 2002, (sem þjálfari) Brenton Birmingham – Íslandsmeistari 2001, 2002, 2006 Páll Kristinsson – Íslandsmeistari 1995, 1998, 2002 Jeb Ivey – Íslandsmeistari 2006 Logi Gunnarsson – Íslandsmeistari 1998, 2001, 2002 Guðmundur Jónsson – Íslandsmeistari 2006 Egill Jónasson – Íslandsmeistari 2006 Jóhann Árni Ólafsson – íslandsmeistari 2006 Daníel Guðni Guðmundsson Rúnar Ingi Erlingsson – Íslandsmeistari 2006 Góðgerðaleikurinn verður til styrktar Líknarsjóðum Njarðvíkurkirkna. Kristján Möller og Sigmundur Herbertsson munu dæma leikinn ásamt því að Kristbjörn Albertsson verður eftirlitsdómari. Doddi litli verður kynnir á leiknum, þannig að það eru ,,orginalar" sem koma að öllum þætti leiksins.