8 des. 2012Dregið var í morgun í fyrstu umferð undankeppni EuroBasket sem fram fer árið 2015 í Úkraínu. Um er að ræða keppni þjóða sem ekki tryggðu sig áfram í sumar og haust inn á lokamótið í Slóveníu núna næsta haust 2013. Eftirfarandi lið drógust saman: A-riðill: Búlgaría, Rúmenía, Ísland B-riðill: Holland, Eistland, Portúgal C-riðill: Sviss, Austurríki, Lúxemborg, Danmörk D-riðill: Hvíta-Rússland, Ungverjaland, Slóvakía Leikið verður heima og að heiman 1.-16. ágúst og munu efstu fjögur liðin leika til úrslita (heima og að heiman aftur) um eitt laust sæti á EM2015.