18 nóv. 2012FIBA Europe var að draga í riðla nú fyrir nokkrum mínútum fyrir EuroBasket2013 sem fram fer í Slóveníu í lok næsta sumars. Mótherjar Íslands frá því í undankeppninni í sumar Ísrael, Svartfjallaland og Serbía voru í pottinum. Eftirfarandi riðlar litu dagsins ljós: A-riðill Frakkland Bretland Þýskaland Úkraína Belgía Ísrael B-riðill Makedónía Litháen Svartfjallaland Bosnía Lettland Serbía C-riðill Spánn Slóvenía Króatía Pólland Georgía Tékkland D-riðill Rússland Grikkland Ítalía Finnland Tyrkland Svíþjóð Áhugaverðir punktar: Bosnía, Svartfjallaland, Serbía og Makedónía lentu öll í sama riðli en þetta eru fjögur af sex fyrrum ríkjum Júgóslavíu, þarna vantaði bara Króatíu og Slóveníu sem þó gátu ekki lent í sama riðli sökum styrkleikaflokkunar. Að auki leika Litháar með þeim í riðli og Lettar. Finnar og Svíar lentu saman í riðli, einu tvær norðurlandaþjóðirnar sem verða á EM, sem er skemmtilegt en gríðarlega erfiður riðill framundan fyrir frændur okkar þar sem Rússar, Ítalir og Tyrkir leika einnig. Rússar og Tyrkir hafa verið í fremstu röð undanfarin ár og Ítalir áttu gott sumar í undankeppninni og virðast vera að minna á sig að nýju eftir dræmt gengi undanfarin ár. Það er því útlit fyrir spennandi Evrópumót og sannkölluð veisla framundan fyrir körfuboltaaðdáendur um allan heim í Slóveníu 2013. Mótinu verður gert góð skil að venju og vonandi að Ísland verði ekki aftur í hópi tveggja evrópuþjóða, ásamt Azerbadjan, sem ekki sýndi leiki frá síðasta móti 2011 sem fram fór í Litháen. EuroBasket 2013 fer fram 4.-22. september þar sem leikið verður í fyrstu umferð í borgunum Jesenice, Koper, Celje og Hala Tivoli í Ljubljana. Seinni umferðin og úrslitin verða svo leikin í Stozice-höllinni í Ljubljana.