13 nóv. 2012Sigmundur Már Herbertsson, dómari, mun í kvöld dæma leik Tartu Rock og Medias í evrópukeppni félagsliða sem haldin er á vegum FIBA Europe. Leikurinn fer fram í Tartu, Eistlandi, kl. 18.00 að íslenskum tíma. Allir leikir í keppninni eru í lifandi tölfræði á heimasíðu fibaeurope.com. Meðdómarar Sigmunds eru frá Rússlandi og Austurríki. Pétur Hrafn Sigurðsson mun svo síðar í mánuðinum vera eftirlitsmaður á sinni leik Norrköping Dolphins og BK Ventspils sem fram fer í Svíþjóð. Pavel Emolinskij er leikmaður Norrköping en BK Ventspils vann fyrri leik liðanna, sem jafnframt var fyrsti leikur liðanna í keppninni, 72:68.