6 nóv. 2012Nú hefur nýjasta útgáfan af leikreglunum verð þýdd á íslensku. Eftir nýjustu breytingarnar sem gerðar voru á leikreglunum, með nýrri 14 sek. reglu og og staðsettningu þriggjstigalínunar, kom uppfærsla á regluverkinu og hefur því verið snarað yfir á íslensku. Það var Pétur Hrafn Sigurðsson, formaður dómaranefndar KKÍ og fyrrum framkvæmdarstjóri KKÍ, sem þýddi reglurnar fyrir KKÍ. Búið er að uppfæra reglurnar í .pdf skjal undir „Leikreglur“ í valmynd síðunnar og heita þær þar „Leikreglur í körfuknattleik - íslenska“. Hægt er að nálgast þær einnig [v+]http://www.kki.is/skjol/Leikreglur2010_uppfaert2012.pdf [v-]hérna[slod-]. Á sama stað eru þær einnig á ensku fyrir þá sem þess þurfa.