13 okt. 2012KKÍ og Íslenskar getraunir framlengdu samstarfssamningi sínum til eins árs nú á dögunum. Samstarfið felur meðal annars í sér að Deildarbikarinn mun áfram bera nafnið Lengjubikarinn. Það er KKÍ mikils virði að hafa öfluga samstarfsaðila og hefur samstarfið við Íslenskar getraunir verið með miklum ágætum síðastliðin ár. Það er því mikið ánægjuefni fyrir KKÍ að halda samstarfinu áfram.