2 okt. 2012Í dag kl. 13.30 verður haldin fjölmiðlafundur fyrir upphaf Domino's deildanna sem hefjast á morgun miðvikudag hjá konum og sunnudaginn hjá körlum. Fulltrúar, þjálfarar og fyrirliðar allra liða í Domin's deildunum verða á staðnum sem og fjölmiðlar og að venju verður spá þeirra kynnt. Fundurinn verður haldinn í fyrirlestrar sal Laugardalshallarinnar og hefst klukkan 13:30. Gengið er inn um nýja anddyri Hallarinnar að framan.