2 okt. 2012Draumaliðsleikur Domino's deilda karla og kvenna var kynntur á blaðamannafundinum í dag. Nú geta aðdáendur íslensks körfubolta tekið þátt í skemmtilegum „Fantasy" leik þar sem hægt er að velja leikmenn úr Domino's deildum karla og kvenna í lið og svo safnað stigum eftir frammistöðu þeirra í vetur. Leikmenn fá stig eftir tölfræðinni sem tekin er á hverjum leik beint og hún yfirfærist í stig og í draumaliðsleikinn. Allar nánari upplýsingar er að finna á [v+]http://www.dominosdeildin.is [v-]dominosdeildin.is[slod-] þar sem hægt er að skrá sig til leiks og velja lið, lesa leiðbeiningar og skoða leikmenn. Vegleg verðlaun í boði í báðum deildum í lok tímabilsins fyrir stigahæstu „þjálfarana“ Fyrir fundinn í dag var gefið út kynningarhefti fyrir deildirnar þar sem hægt er að lesa um liðsskipan, breytingar á liðunum, leikjaplan og fleira. Heftið er hægt að nálgast á [v+]http://www.kki.is/skjol/kki_hefti2012.pdf [v-]PDF hérna[slod-].