2 okt. 2012KKÍ mun standa fyrir dómaranámskeiði nú í október og mun sú nýbreytni verð að námskeiðið verður kennt á veraldravefnum, með fjarkennslu og lýkur henni með bóklegu prófi á netinu. Verkleg kennsla fer svo fram seinni partinn í október og verður þá reynt að koma til þátttakenda og taka verklegt próf á heimavelli þeirra í tengslum við fjölliðamót. Skráning á netfangið [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-] og lýkur skráningu þriðjudaginn 9. október. Þátttökugjaldið er 3.000 kr. Um er að ræða nýtt fyrirkomulag dómaranámskeiða á vegum KKÍ. Tilgangurinn er að ná til fleiri þátttakenda og taka námskeiðið á lengri tíma en verið hefur hingað til. KKÍ vonast til að með þessu nýja fyrirkomulagi gefi fleiri sér tíma til að sækja námskeið og taka þannig þátt í eflingu körfuknattleiksíþróttarinnar út um allt land.!