21 sep. 2012
Ákveðið hefur verið að úrslitaleikur Lengjubikars kvenna fari fram í Toyota-höllinni í Keflavík fimmtudaginn í næstu viku, þann 27. september. Þrjú lið sóttu um að halda úrslitaleikinn og ákvað stjórn KKÍ að fela Keflavík umsjónina með leiknum. Úrslit í riðlakeppnnni verða ljós um helgina þegar keppni lýkur með fimm leikjum, fjórum á morgun laugardag og einum á sunnudag. Þá verður ljóst hvaða tvö lið leika til úrslita.