18 sep. 2012Utandeild Breiðabliks mun fara fram í ár eins og mörg undanfarin ár. Deildin mun hefjast um miðjan október og standa fram í mars. Hvert lið fær að minnsta kosti 5 leiki. Leikið verður á föstudagskvöldum í Smáranum og sér Breiðablik bæði um dómgæslu og ritaraborð í hverjum leik. Þátttökugjald verður kr. 55.000 og greiðist fyrir fyrsta leik. Þátttökutilkynningum skal skila á netfangið [p+]phs@getspa.is[p-]phs@getspa.is[slod-] sem allra fyrst og í síðasta lagi 1. október. Fram þarf að koma nafn liðs, nafn forsvarsmanns, netfang og GSM-símanúmer. Allar frekari upplýsingar um mótið má finna á Breidablik.is/karfa eða með því að senda póst á ofangreint netfang.