12 sep. 2012Íslensku strákarnir mættu Eistum í gær í lokaleik liðsins í undankeppni EM. Var þetta tíundi leikur liðsins en fyrir leikinn var einn sigur kominn í hús. Strákarnir náðu ekki að fylgja eftir góðum fyrsta leikhluta en þá skoraði liðið 22 stig og fékk á sig 24. Eftir það gekk erfiðlega að skora og heimamenn gengu á lagið. Lokatölur leiksins voru 80-58 fyrir Eista. Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur með 13 stig, Jakob Sigurðarson setti 12 og Hlynur Bæringsson 11. Tölfræði [v+]http://www.eurobasket2013.org/en/cid_8Xfg3jZMG1QuJnp6pnUWd3.gameID_8830-A-29-10.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2013.roundID_8721.teamID_.html[v-]leiksins[slod-]