8 sep. 2012Íslenska karlalandsliðið tapaði fyrir Svartfjallalandi 92-101 í síðasta heimaleik liðsins í undankeppni EM. Íslenska liðið leiddi næstum allan leikinn en gestirnir komust fyrst yfir þegar rétt tæpar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Ísland var mest 22 stigum yfir. Stigahæstur hjá Íslandi var Jón Arnór Stefánsson með 32 stig og Hlynur Bæringsson setti 22 stig og tók níu fráköst. Næsti leikur liðsins er gegn Eistum ytr n.k. þriðjudag og verður leikurinn í beinni á Ólympíurás RÚV. Tölfræði leiksins má sjá [v+]http://www.eurobasket2013.org/en/default.asp?cid={221A6A0E-D8D6-4016-B84F-1CC6CF17A09F}&compID={D166E39E-2323-4863-B229-76357A926FA2}&season=2013&roundID=8721&gameID=8830-A-27-9[v-]hér[slod-].