8 sep. 2012Eftir tæpa tvo tíma hefst síðasti heimaleikur Íslands í undankeppni EM 2013 í Laugardalshöll. Leikurinn hefst kl. 15.45. Miðasala er á leikstað og KKÍ hvetur alla áhugamenn um körfubolta að koma og styðja við bakið á íslenska liðinu og sjá frábæra leikmenn í báðum liðum eigast við. Svartfjallaland eru á toppnum í riðlinum taplausir og íslensku strákarnir áttu frábæran leik gegn Ísrael í síðasta leik. Áfram Ísland!