6 sep. 2012Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir landsleikina framundan. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sent tölvupóst á kki@kki.is á morgun föstudag milli 14.00 og 16.00 og óskað eftir miðum fyrir leik Íslands og Svartfjallalands sem er síðasti heimaleikur Íslands í keppninni. Síðan verður hægt að nálgast miðana í Laugardalshöll frá kl. 14.30 á leikdag. Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis: Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst skrifstofu KKÍ á sama tíma (Á milli 14:00 og 16:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða á báða leikina sem eru eftir og síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll frá kl. 14:30 í Laugardalshöll á undan leik Íslands og Svartfjallalands sem hefst kl. 15.45. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is. Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“ Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ - Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ - [v+]http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=23[v-]KKÍ.is[slod-]