5 sep. 2012Haustfundur dómara verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal næstkomandi laugardag. Fundurinn hefst kl 9 og lýkur um 18:30. Allir þeir dómarar sem ætla að dæma í vetur verða að mæta á fundinn og einnig eru allir þeir velkomnir sem ekki hafa verið að dæma en hafa áhuga á að dæma. Dómaranefnd hvetur nýliða til að mæta því alltaf er pláss fyrir fleiri dómara.