5 sep. 2012Dorrit Moussaieff, forsetafrú Íslands verdur heiðursgestur a leik Ísraels og Íslands í undankeppni EM í körfubolta i Tel Aviv seinna í kvöld. Dorrit mun fyrir leikinn heilsa formlega uppá leikmenn beggja liða i fylgd Avner Kopel, formanns ísraelska körfuknattleikssambandsins og Hannesar S. Jónssonar formanns KKÍ. Leikurinn verður í beinni á aukarás RÚV (Ólympíurásinni) og hefst leikurinn kl. 21.00 úti eða kl. 18.00 að íslenskum tíma.