29 ágú. 2012Íslenska landsliðið er nú í þessum töluðu orðum að ferðast til Serbíu þar sem þeir mæta heimamönnum á morgun fimmtudag. Nú er keppnin hálfnuð í okkar riðli í undankeppni EM2013 og því ekki úr vegi að skoða stöðuna eins og hún er í dag þegar allar þjóðirnar hafa leikið fimm leiki. Ísrael tóku á móti Serbíu í gær og sigruðu [v+]http://www.eurobasket2013.org/en/cid_8Xfg3jZMG1QuJnp6pnUWd3.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2013.gameID_8830-A-13-5.html [v-]89:76[slod-], sem er gríðarlega mikilvægt fyrir þá, þar sem baráttan um 2. sæti riðilsins virðist ætla að standa á milli þessara þjóða. Það þýðir að Svartfjallaland hefur unnið alla fimm leikina sína en á eftir koma þrjú lið sem hafa sigrað þrjá og tapað tveimur leikjum. Það eru Ísrael, Serbía og Eistland, þar sem Ísrael stendur best að vígi innbyrðis. Ísland er í 5. sæti riðilsins með einn sigur og fjögur töp og Slóvakía hefur tapað sínu fimm leikjum. Barátta er um efstu tvö sætin sem gefa beint sæti áfram en besta þriðja sætið í riðlunum sex mun einnig gefa sæti á lokakeppninni í Slóveníu næsta haust.