26 ágú. 2012Kvennaráð kkd UMFN í samvinnu við Ljósanæturnefnd, stendur fyrir hraðmóti í körfubolta kvenna, í fimmta sinn, dagana 29. og 31. ágúst 2012. Fjögur lið eru skráð til þátttöku og fara leikirnir fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Leikjaniðurröðun er sem hér segir: Miðvikudagur 29. ágúst – Ljónagryfjan: 17:30 Grindavík – Snæfell 19:00 Njarðvík – Fjölnir 20:30 Snæfell - Njarðvík Föstudagur 31. ágúst – Ljónagryfjan: 17:30 Snæfell – Fjölnir 19:00 Njarðvík – Grindavík 20:30 Grindavík - Fjölnir