24 ágú. 2012Í kvöld kl. 18.30 að íslenskum tíma eigast við Svartfjallaland og Ísland ytra. Leikurinn er fjórði leikur liðanna í keppninni. Svartfjallaland býður frítt á leikinn og má því búast við dágóðum fjölda á leiknum, en sami háttur var á hjá Serbíu þegar þeir léku gegn Svartfjallalandi og þá mættu 18.000 manns á leikinn (sjá videó neðar). Ísland hefur unnið Slóvakíu en tapað fyrir Ísrael og Serbíu. Svartfjallaland hafa unnið alla sína fyrstu þrjá leiki, gegn Ísrael, Eistlandi og nágrönnum sínum í Serbíu, [v+]http://www.youtube.com/watch?v=GUcF31FFsrw&feature=related [v-]þar sem þeir sigruðu með því að skora flautukörfu frá miðju[slod-]. Bein útsending á netinu og lifandi tölfræði í kvöld Leikurinn er í lifandi tölfræði hér í FIBA Europe-glugganum á KKÍ.is og við höfum fréttir af því að hann verði sýndur á ríkissjónvarpsstöð Svartfjallalands og ætti að vera hægt að sjá hann á netinu á [v+]http://www.rtcg.me/program/programska-sema/rtv-stanice/sema/stanice/2.html [v-]www.rtcg.me[slod-] og efst fyrir miðri síðu stendur „Nacionalni javni servis" og þar undir er ljósblár tengill sem á stendur „TV UZIVO" sem opnar beina útsendingu t.d í [v+]http://www.videolan.org/ [v-]VLC Player[slod-] sjálfkrafa. Eistland á mánudaginn Næsti heimaleikur Íslands verður á mánudaginn kemur kl. 19.15 í Laugardalshöllinni. Miðasala er á www.midi.is en frábær mæting hefur verið á fyrstu tvo heimaleikina og frábær körfubolti leikinn í Höllinni. Við hvetjum alla til að fjölmenna og styðja við bakið á landsliðinu.