22 ágú. 2012Nú um helgina fer fram seinni æfingahelgi úrvalsbúða KKÍ eða laugardaginn 25. ágúst og sunnudaginn 26. ágúst. Fyrri æfingahelgin var í byrjun júní. Úrvalshóparnir eru undanfari yngri landsliða Íslands þar sem unglingalandsliðsþjálfarar ásamt gestaþjálfurum stjórna æfingum og fara yfir helstu tækniatriði. Dagskráin er eftirfarandi fyrir báða dagana: Krakkar ´01 · kl. 09.00 – 11.00 Krakkar ´00 · kl. 11.30 – 13.30 Krakkar ´99 · kl. 14.30 – 16.30 Stúlkur verða í Toyotahöllinni, Keflavík, og drengir í Dalhúsum í Grafarvogi.