21 ágú. 2012Ísraelar tóku bæði stigin úr Laugardalshöllinni í kvöld með stórum sigri 83-110. Ísland átti aldrei séns gegn góðu liði Ísraels í kvöld, en Ísraelar hittu ótrúlega vel allan leikinn. Haukur Helgi Pálsson fór fyrir Íslandi með 19 stig og 4 fráköst. Jón Arnór Stefánsson skoraði 17 stig, 6 stoðsendingar og 4 fráköst. Hlynur Bæringsson skoraði 15 stig og tók 8 fráköst. Jakob Sigurðarson skoraði 14 stig, tók 3 fráköst og 3 stoðsendingar.