21 ágú. 2012Nú er keppni lokið hjá U18 landsliði karla en úrslitaleikirnir voru á sunnudaginn. Liðið hafnaði í 13. sæti á Evrópumótinu sem fram fór í Bosníu en landsliðið lék í B-deild keppninnar. Fóru leikar svo að heimamenn sigruðu Tékkland í úrslitaleik um sigur í B-deild og England sigraði Finnland í leik um bronsið og síðasta sætinu í A-deild á næsta ári. Íslensku strákarnir léku vel og voru hársbreidd frá því að lenda í milliriðli þar sem leikið var um 1.-8. sæti. Á topp tölfræðilistum má finna nokkra íslenska leikmenn yfir meðaltöl í leikjum: - Valur Orri er 2. í stolnum boltum (2.2) og 10. í stoðsendingum (3.4) - Martin er fimmti í skoruðum stigum (17.3) og 4. í hittum skotum (6.7) og 6. í reyndum skotum (14.2) - Stefán Karel er 8. í nýtingu inni í teig (56.3) - Matthías Orri er 10. í nýtingu ini í teig (49.5)