20 ágú. 2012Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir landsleikina framundan. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miða fyrir leikina fjóra sem eftir eru í eigin persónu mánudaginn 20. ágúst á skrifstofu KKÍ á milli 15:00 og 17:00. Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis: Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst skrifstofu KKÍ á sama tíma (Á milli 15:00 og 17:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða á alla fjóra leikina sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll frá kl. 18:00 í Laugardalshöll á undan leik Íslands og Ísraels sem hefst kl. 19.15. Tölvupóstinn skal senda á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-]. Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“ Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ - [v+]http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=23[v-]KKÍ.is[slod-]